Falleg saga...

Nóttin var betri,enginn grátur nema bara eldsnemma í morgunSmileerum svo ánægð með litlu snúlluna.Hún vill bara vera við lappirnar á manni eða kúra í hálsakotinu,voðaleg kúru og dekur rófa.

Marín fór á leikskólann í morgun,var ekki mikið að henni í gær.Farin að halda að hún sé orðin svona klár og hafi gert sér upp veikindi til að vera með voffaLoL hún samt virkilega leit út fyrir að vera slöpp en eftir klukkutíma var hún orðin hin hressasta!!

Annars ætla ég bara að láta fylgja hérna ótrúlega fallega sögu sem ég fékk einu sinni á tölvupóstinum.

 

knús Dísa

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli.
Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið.
Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til kennarans sem fór með þetta
Heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir.
Þegar þeir lásu þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu
skrifað.
Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli.
Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en
þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
Lífið hélt áfram.
Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn
ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til
hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði
talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið.
Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu
atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum.
Þakka þér fyrir að gera þetta, því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli’ sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og
Skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því sem þeim þótti vænst um.
Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og
Svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að
lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu
þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér.
Gerðu það oft áður en það verður of seint.
Eitt af því sem þú getur gert ER að senda þetta áfram. Ef þú gerir það
Ekki þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir þá
Sem eru þér mikilvægir.
Ef þú hefur fengið þetta bréf þá ER það af því að einhverjum þykir
vænt um þig og að alla vega einni persónu finnst þú Vera mikilvæg/ur.
Sendu þetta áfram. Sýndu að þér ER annt um vini þína. Mundu að þú
uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum.
Vona að dagurinn verði þér Finn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda P. Sigurðardóttir

Til hamingju með litlu dúlluna;)

Já þetta er sko æðisleg saga.

Hafðu það sem best! Ég er á leiðinni í kaffi;)

Linda P. Sigurðardóttir, 18.3.2008 kl. 13:44

2 identicon

Hanna Dísa....þú ert skemmtileg,mjög dugleg,fyndin,greind,hjálpsöm,falleg jafnt utan sem innan. Alveg frábær vinkona.

Soffía vinkona (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband