30.6.2008 | 11:04
30.júní 2008...
Í dag 30.júní á mín yndislega vinkona Soffía 36.ára afmæli, við náum alltaf að vera jafngamlar í 20 daga Elsku besta Soffía mín, innilega til hamingju með daginn, vonandi að krakkarnir á leikskólanum verði góð við þig í dag. Ég kíki svo á þig í kaffi í dag eða kvöld, og eins gott að þú sért nú búin að baka eina köku
En í dag eru svo 12 ár síðan hún amma mín Jóhanna dó, svo óvænt þegar við vorum saman,öll fjöslkyldan á ættarmóti. Ég sakna hennar enn í dag og hugsa til hennar oft, og hvað það hefði nú verið gaman að ef hún hefði fengið að hitta barna-barnabörnin sín sem við systurnar eigum
Það er svo mynd af Magga í Mogganum í dag, á íþróttasíðunni,stór og flott mynd. Hann kom semsé sæll og glaður frá Eyum í gær, þar sem þeir feðgar höfðu það gott og gaman saman.En þeir voru valdi prúðasta liðið utan vallar, sem eru bara frábær verðlaun.
En nú er best að gera eitthvað hérna
Knús Dísa
Athugasemdir
já það var alltaf gott að fá pönnsur eða flatkökur hjá ömmu
,hún er alveg örugglega oft í heimsókn hjá okkur trúi ekki öðru.
Til lukku með prúðasta liðið,bara flott.
Þóra Kolbrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 19:14
Til hamingju með strákinn! Hann tekur sig svakalega vel út;)
Kv.Linda
Linda P. Sigurðardóttir, 1.7.2008 kl. 23:16
Elsku Dísa mín takk fyrir mig...alltaf gaman að fá ykkur vinkonur mínar í heimsókn
. Til hamingju með Magga músina þína og mína, ekkert smá flott hjá þeim að vera prúðasta liðið, mér finnst það vera flottustu verðlaunin..skítt með einhver mörk!! Hann er bara eins og atvinnumaður á þessari mynd...þetta er bara byrjunin koma örugglega fleiri myndir þegar hann verður kominn í Liverpool eða eitthvað annað...
Sjáumst fljótlega elskurnar mínar
Kv Soffía vinkona
Soffía vinkona (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 15:40
Prúðasta liðið er frábært og gerir hvert foreldri stolt !!
Dóra (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.