11.7.2008 | 09:49
Litla stelpan að verða stór....
Komnar inn nýjar myndir í albúm sumar 2008!!
Matarboðið í gær var að venju alveg geggjað, fórum afvelta heim, ég gat ekki einusinni klárað marengsbombuna sem við fengum, ætla í hádeginu í smá kaffi
En litla-stóra stelpan mín er sinn síðasta dag í leikskólanum í dag. Finnst þetta svolítið skrýtið, að hún sé að fara í skóla úff. Ég fór upp í bakarí til pabba, og náði í eina góða súkkulaðibombu sem Bjarki og Marín gáfu kennurunum sínum. Hér eru nokkrar myndir frá því . Knús Dísa
Athugasemdir
Guð ég fæ bara tár í augun að skoða þetta,pínu blendnar tilfinningar í gangi.Það er ótrúlegt að hugsa til þess að stóri strákurinn minn sé að fara í skóla,ég man minn fyrsta skóladag eins og hann hafi gerst í gær,ríghélt í mömmu og labbaði inn í Seljaskóla með nýja tösku á bakinu.
Linda ég er ennþá södd síðan í gær,þetta var bara geggjað.
Hlakka til að koma til þín Dísa eftir 2 vikur,hvað ætlar þú að elda
Þóra Kolla (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 10:08
o það fór allt út hjá mér sem ég var búin að skrifa
verði ykkur að góðu elsku systur
jæja er að fara í fótsnyrtingu knús Linda
Linda (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 10:43
Æðislegar myndir af Marýn og Bjarka .Það verður ekki leyðinlegt fyrir Þóru að fara með Bjarka í haust .Og rifja upp gamlar minningar. Knús Mamma
Mamma (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 22:27
Sorry Marín min
Amma (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 23:15
Hæ hæ...já þetta er alltaf jafn skrýtið þegar börnin manns fara úr örugga umhverfi Leikskólans og fara í skóla og þurfa að fara sjá um allt sjálf, passa sig og sitt á hverjum degi....gengur misvel en kemur allt með æfingunni
Vildi að ég væri systir ykkar...þið alltaf svo duglegar að hittast og bjóða í góðan mat....namm nammm.
Jæja elsku vinkona bless í bili
Soffía
Soffía vinkona (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 10:45
Æðislegar nýju myndirnar;)
Kv.Linda
Linda P. Sigurðardóttir, 13.7.2008 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.