25.8.2008 | 17:25
Fyrsti skóladagurinn....
Það var lítil stolt stelpa sem fór í skólann sinn í morgun með nýju fínu töskuna sína. Auðvitað labbaði ég með henni og stóri bróðir líka, sem er aldeilis búinn að segja henni frá hvernig allt virkar,hvað hún á að gera við hinar og þessar aðsæður ofl. Svo mátti mamman sko ekki koma og sækja hana, hún ætlaði sko að labba ein heim. Maggi er nefnilega aðeins lengur en hún í skólanum. Endaði reyndar á því að mamma vinkonu hennar keyrði hana heim.
Vinkonan kom svo hingað um 4 leytið til Marínar, og vinkona hans VIktors er hjá honum. Svona á þetta að vera, allir inn í herbergi að leika, alveg meiriháttar. Marín hefur nú ekki haft mikið af stelpum til að leika sér við greyið.
Núna semsagt eru 2 stelpur hér í heimsókn hjá sitthvoru barninu og þvílíkt næði hér hjá mér
Minni ykkur svo þið sem eruð í Bombuklúbbnum á partýið á föstudaginn hjá Lindu, verður svaka stuð hjá okkur jibbí!!
Knús Dísa
Athugasemdir
Já bara að leika sér í herberginuJá stelpur partý á Föstudag kl 20.oo stundvíslega kv Linda
Linda Rós (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 22:16
Kvittetí kvitt....mæti að sjálfsögðu í partý, Þóra verður ekki H&M listinn með í för...he he
út með gæruna
Soffía
Soffía vinkona (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 21:13
Var að fá staðfestar fréttir að listinn verður á staðnum hahahahahaah
'Asta verður kortið ekki á lofti hjá þér
Linda (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 23:17
Á ekkert að fara að blogga
Þóra Kolla (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 10:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.