9.9.2008 | 23:21
Bless í bili....
Jæja, ætla bara rétt að kasta á ykkur kveðju áður en ég fer í háttinn, ætlaði reyndar að vera farin að sofa kl 22 en það gekk auðvitað ekki eftir. Verð sótt hérna í nótt kl 4 og við Linda,Svala og Þóra brunum til mömmu sem ætlar að keyra okkur upp á völl. Dóra, Soffía og Anna Gyða koma svo saman.
Annars var ég bara rétt í þessu að klára að skúra og ryksuga, já og klukkan rúmlega 11!! En það er nú bara af því að Axel stendur ekki í lapprinar núna eftir hreindýraveiðarnar, hann missteig sig svona illa og heldur að hann sé brákaður, fór upp á slysó í morgun en þeir vildu ekkert vera að mynda þetta....en hann er semsagt núna sárkvalinn, ég hef bara aldrei séð hann svona, stokkbólgin og getur ekki stigið í lappirnar. Alveg ferlegt ástand, svo ég er búinn að vera á þönum hér í allt kvöld.
Vona bara að hann fari nú að jafna sig og nái allaveganna að sofa í nótt.
En nú ætla ég að fara að REYNA að sofa eitthvað, er orðin spppppeeeennnnnt....alltaf æði í Köben.
Knús á ykkur öll, og ástarkveðja
Dísaxxx
Athugasemdir
Hæ ! Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt, Góða skemmtun í Köben !!!!
kv Erla
Erla (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 11:52
Halló halló bloggmeistari ! .....er bara ekkert komið um ferðina okkar frægu til Köben.....Drífðu þig að skrifa þá verður það "masse godt"
Dóra (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 15:00
Var það ekki massa maged godt.
Koma svo og blogga núna.
p.s dú jú læk tú teist mæ kandý,it teists læk sóp.Verí gúd
Þóra Kolla (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.