28.6.2009 | 10:43
Geysp...
Skil ekki af ég get aldrei sofið almennilega út!! Alveg óþolandi, ég fór ekki að sofa fyrr en rúmlega 2 og ætlaði nú aldrei að sofna fyrir partýi við hliðina á okkur og svo hrotum, rumskaði svo líka klukkan 4..eflaust út af hrotum, og var vöknuð vel fyrir 10!! Einsog það eru nú miklar svefnburkur í familíunni...þó aðallega mömmu meginn. Þær eru nokkrar sem fara létt með 12-14 tíma svefn en ég nefni nú enginn nöfn Ég er sko búin að sofa fyrir allt árið liggur við ef ég næ 9 tímunum. En svona er þetta bara, 15 stiga hiti þegar ég kom upp, enginn sól en hún er að brjótast hérna út núna. Verður örugglega æðislegur dagur.
Fórum á Selfoss í gær og Hveragerði. Þurfti að fara í flottustu barnafatabúðina sem er á Selfossi og skila kjól sem ég keypti þar á Marín þegar við vorum síðast í bústað. Hann var aðeins of lítill og fékk ég loksins flottar gallabuxur á skvísuna og bol í staðinn. Veðrið var alveg geggjað, steikjandi hiti og sól á báðum stöðum. Ég var ekki alveg rétt klædd, enda var ekki svona gott í RVK þegar við lögðum af stað. Var í háum svörtum stígvélum og alveg að kafna.
Í hveragerði fórum við á blómadagana, svakalega mikið af fólki og við hittum Dóru og Bjössa og löbbuðum aðeins um með þeim. Allt morandi í litlum hundum þarna, svo Mandla var bara hress með þetta Marín og Viktor komust í hoppukastala en Maggi var hjá æskuvininum. Keypti mér 2 Himalaja greini eða hvað þetta heitir, geggjuð tré hérna fyrir framan húsið. Maður verður alltaf að kaupa sér eitthvað í garðinn í Hveragerði. Enda var þetta helmingi ódýrara heldur en í RVK.
Fórum svo og grilluðum með Lindu&Mumma, ekki klikkaði það frekar en fyrri daginn, og sátum þar til 1, en þá voru Viktor og Sigfús búnir að búa um sig á gólfinu undir teppi enda frekar þreyttir. Það var heldur ekki vandamál að koma krökkunum í svefninn þegar við komum heim.
Marín og Axel sofa enn, en Viktor var að koma hérna upp og klukkan rúmlega hálf ellefu.
Ætlum að þrífa bílinn í dag, bera áburð á garðinn og taka til hérna fyrir utan,ekta sunnudagur í vændum!
Svo hlakkar mig mikið til þriðjudagsins, þá ætlar Soffía vinkona að skíra tvíburana sína og hún á líka afmæli þennan dag. En ég fer líka upp í kirkjugarð þann dag, elskulega amma mín og nafna dó þennan dag fyrir 13 árum, og ég ég man þennan dag einsog gerst hafi í gær þegar hún dó á ættarmótinu með okkur. Hugsa enn til hennar oft í viku, og finnst alltaf jafn skrýtið að hún sé farin.
Jæja sólin er kominn og þetta verður góður dagur,
knús Dísa
Athugasemdir
Hæ hæ takk fyrir síðast
Já það er alveg ótrúlegt að það séu 13 ár síðan amma dó.sjáumst í bíó á eftir......
Linda Rós (IP-tala skráð) 28.6.2009 kl. 18:28
Bara kvitta fyrir innlitið,greinilega skemmtileg helgi að baki,nóg að gera hjá ykkur.Við skelltum okkur í Laugarás í útilegu og skemmtum okkur konunglega í rjómablíðu.
Þóra Kolla (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 09:36
Kvitti kvitt.
Þetta er aldurinn sem er að segja til sín að geta ekki sofið út :-)
Kv Íris
Íris Ósk (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 08:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.